HáRún x Ditzy á Loft

HáRún x Ditzy á Loft

Loft hostel, , 101 Reykjavík Kort

lau 19. sep 2026 20:30

Söngvaskáldin HáRún og Ditzy taka yfir Loft Hostel laugardaginn 19.september ásamt hljómsveitum með hráleika og einlægni, stuði og dansi. Ekki láta ykkur vanta!

HáRún - 20:30

Ditzy - 21:30

HáRún er indí-folk/popp söngvaskáld sem syngur hjartnæm lög á íslensku. Kassagítarinn spilar stórt hlutverk í lögunum, textarnir eru einlægir og kraftmikla röddin dregur hlustandann nær. HáRún dregur innblástur úr ýmsum áttum og málar oft upp myndir í lögum sínum með náttúrunni, en lögin fjalla meðal annars um söknuð, ofhugsanir, og löngunina að tilheyra.

https://linktr.ee/helg4run

Ditzy er ódauðleg vera, viðstödd frá upphafi mannkyns. Í dag gengur hún um í gervi ungs og sólþyrsts tónskáld sem segir sögur, dansar og sýpur hveljur. Hvort hún segi satt frá í tónlistinni, sem fer úr heiðarlegu poppi yfir í folk og singer-songwriter væl, er óljóst. Ekki gefa dýrinu að borða.

Grafík: Jóhanna Huld Baldurs (@johuld)