GLITRAÐU með Einstökum börnum á degi sjaldgæfra sjúkdóma✨Taktu daginn frá - 26.02.2027

GLITRAÐU með Einstökum börnum á degi sjaldgæfra sjúkdóma✨Taktu daginn frá - 26.02.2027

Í streymi, , Reykjavík Kort

fös 26. feb 2027 00:00

Bústaðu viðburðinn!

Glitraðu með Einstökum börnum - fyrir sjaldgæfa sjúkdóma 26. febrúar 2027

Minnum á okkur - dreifum upplýsingum, fáum vini og vinnufélaga með í að GLITRA þennan dag.

Dagur sjaldgæfra sjúkdóma og heilkenna er á FÖSTUDAGINN 26.02.2027 ✨ Félag Einstakra barna hvetur öll til að sýna stuðning og samstöðu við þau sem lifa með sjaldgæfa sjúkdóma og heilkenni með því að GLITRA með okkur 💚🩵🩷💜✨

GLITRAÐU með okkur með því að klæðast eitthverju GLITRANDI eins og glimmeri eða pallíettum. Allt sem er litríkt og glitrar er skemmtilegt og minnir okkur á að við erum allskonar.

Með þáttöku flestra í þessari vitundavakningu vekjum við athygli á því að meira en 1000 börn og ungmenni á Íslandi glíma við erfiðar og fátíðar greiningar sem afar fáir þekkja eða skilja.