Gjafaöskjugerð

Gjafaöskjugerð

Borgarbókasafnið | Menningarhús Árbæ, Hraunbær 119, 110 Reykjavík Kort

þri 10. nóv 2026 15:30

Bústaðu viðburðinn!

Verið hjartanlega velkomin í gjafaöskjugerð í Borgarbókasafninu Árbæ!

Við ætlum að búa til gjafaöskjur með origami aðferð sem getur nýst vel ef áhugi er á að búa til gjafir frá eigin hendi. Frábær leið til að gera gjafir persónulegri og umhverfisvænni! 🎁💚

Eigum saman notalega stund þar sem leiðbeinandi aðstoðar við gjafaöskjugerðina.

Leiðbeinandi verður á staðnum til aðstoðar eftir þörfum og allt sem þarf til föndursins verður til taks. Það er velkomið að koma með sinn eigin efnivið og áhöld til að setja persónulegan svip á sköpunina. ✨🖍️

Smiðjan hentar bæði fullorðnum og eldri börnum. Yngri börn eru velkomin í fylgd fullorðinna sem geta aðstoðað.

Við hvetjum fullorðna til að mæta og leyfa sköpunargleðinni að njóta sín í notalegri og skemmtilegri stund.

✅ Aðgangur er ókeypis ✅ Skráning er óþörf

📚 Nánari upplýsingar um viðburðinn á heimasíðu Borgarbókasafnsins: https://borgarbokasafn.is/events/708939

Tilbúningur er viðburðarröð sem fer fram á:

📍 Borgarbókasafninu Spöng fyrsta miðvikudag hvers mánaðar

📍 Borgarbókasafninu Árbæ annan þriðjudag hvers mánaðar

📍 Borgarbókasafninu Úlfarsárdal fyrsta fimmtudag hvers mánaðar.

Frekari upplýsingar um Tilbúning má finna á heimasíðu Borgarbókasafnsins: https://borgarbokasafn.is/tilbuningur

Nánari upplýsingar veitir:

Heiðrún G. Viktorsdóttir | sérfræðingur

heidrun.greta.viktorsdottir@reykjavik.is