Gjafainnpökkun með vösum
Borgarbókasafnið | Menningarhús Árbæ, Hraunbær 119, 110 Reykjavík Kort
þri 8. des 2026 15:30
Bústaðu viðburðinn!Verið hjartanlega velkomin í skemmtilega gjafapökkunarsmiðju á Borgarbókasafninu Árbæ! 🎁✨
Í þessari smiðju ætlum við að pakka inn gjöfum á fallegan hátt þar sem framhlið pakkans myndar litla vasa. Þessir vasar eru fullkomnir fyrir kveðjukort, litla miða, skraut eða smágleði sem gefa gjöfinni persónulegan og einstakan svip.🎀
Eigum saman notalega og skapandi stund þar sem leiðbeinandi sýnir hvernig vasarnir eru gerðir og aðstoðar eftir þörfum.
Það verður maskínupappír í boði og gjafapappír á meðan birgðir endast, en þátttakendur eru velkomnir að koma með eigin efni eða áhöld ef þau vilja setja persónulegan svip á pakkann. ✨
Smiðjan hentar bæði fullorðnum og eldri börnum.
Við hvetjum alla til að mæta og leyfa sköpunargleðinni að njóta sín í hlýlegri og skemmtilegri föndurstund.
Aðgangur er ókeypis og skráning er óþörf.
Nánari upplýsingar um viðburðinn má finna á heimasíðu Borgarbókasafnsins.
Aðgangur er ókeypis og skráning er óþörf.
Tilbúningur er viðburðarröð sem fer fram á:
📍 Borgarbókasafninu Spöng fyrsta miðvikudag hvers mánaðar
📍 Borgarbókasafninu Árbæ annan þriðjudag hvers mánaðar
📍 Borgarbókasafninu Úlfarsárdal fyrsta fimmtudag hvers mánaðar.
Nánari upplýsingar veitir:
Heiðrún G. Viktorsdóttir | sérfræðingur
heidrun.greta.viktorsdottir@reykjavik.is