Gervigreind á mannamáli

Gervigreind á mannamáli

Í streymi, , Reykjavík Kort

fim 5. nóv 2026 17:00

Bústaðu viðburðinn!

Finnst þér gervigreind hljóma flókið? Eru allir í kringum þig að tala um ChatGPT en þú veist ekki hvar á að byrja?

Það er algjörlega eðlilegt að finnast ný tækni ógnvekjandi eða hugsa að hún sé eingöngu fyrir tölvunörda og yngri kynslóðir. Þetta námskeið er hannað sérstaklega til að afsanna það. Við förum yfir gervigreind á mannamáli, á rólegum hraða og án alls tæknijargons.

Engin spurning er of einföld og engin tækniþekking er nauðsynleg – ef þú kynnir að opna netvasa og tölvupóst, þá ertu tilbúin(n)!

Fyrir hverja er námskeiðið?

Allar/alla sem langar að skilja hvað gervigreind er en vita ekki hvar á að byrja.

Fólk sem telur sig vera „tæknifælið“ eða finnst tölvumál oft flókin.

Þá sem vilja læra að nota einföld og ókeypis verkfæri til að létta sér vinnu og daglegt líf.

Markmið námskeiðsins

Að eyða ótta við nýja tækni og veita þér öryggi til að taka fyrstu skrefin. Að námskeiði loknu munt þú skilja hvað gervigreind er í raun og veru, og kunna að nota hana sem hjálplegan aðstoðarmann í daglegu lífi.

Leiðbeinendur:

Bergmann Guðmundsson og Hans Rúnar Snorrason

Hvar og hvenær:

Vefnámskeið

5. nóvember klukkan 17:00-19:00

Verð: 19.900 kr*

*ATH: Stéttarfélögin Aldan, Samstaða, Kjölur, Sameyki, Verslunarmannafélag Skagafjarðar og stéttarfélög sem eru aðilar að Iðunni greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn. (Athugið að þetta á við greiðandi félagsmenn í flestum tilfellum og hefur ekki áhrif á persónulegan námsstyrk félagsmanna) Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi