Garn og spjall
Borgarbókasafnið | Menningarhús Árbæ, Hraunbær 119, 110 Reykjavík Kort
sun 15. nóv 2026 13:00
Bústaðu viðburðinn!Óformleg samverustund áhugafólks um handavinnu af öllu tagi.
Þátttakendur geta heklað, prjónað, saumað út eða sinnt annarri handvinnu og spjallað saman á meðan. Upplagt að skiptast á uppskriftum, fá ráð hjá öðrum, spá og spekúlera í handverkinu nú eða ræða landsins gagn og nauðsynjar.
Við hittumst einu sinni í mánuði og eigum saman rólega stund í notalegu umhverfi.
Gott úrval af handvinnubókum og -blöðum er á staðnum og kaffi á könnunni.
Verið velkomin!
Nánari upplýsingar veitir:
Katrín Guðmundsdóttir
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is
s. 411 6250