Fræðslufundur Húsverndarstofu

Fræðslufundur Húsverndarstofu

Dillonshús Árbæjarsafni, Kistuhylur, 110 Reykjavík Kort

mið 23. sep 2026 17:00

Húsverndarstofa býður til fræðslufundar í Lækjargötuhúsi á Árbæjarsafni 23. september kl. 17:00.

Að þessu sinni mun Ólafur Halldórsson, einn eiganda húsanna við Þingholtsstræti 26 í Reykjavík og Eyrargötu 16 á Siglufirði, deila reynslu sinni af verndun, viðhaldi og viðgerðum á húsunum. Frítt inn og öll velkomin!

Þingholtsstræti 26, sem er tvílyft bindingsverkshús með risi og kjallara, var reist árið 1903 og hefur staðið nánast óbreytt frá upphafi. Frá árinu 1990 hafa staðið yfir töluverðar endurbætur á húsinu. Fjallað verður um endurnýjun glugga, hitakerfis, raflagna og fleira.

Eyrargata 16 á Siglufirði var reist árið 1929 af Kristni Björnssyni gullsmiði. Húsið á sér merkilega sögu en í því var meðal annars rekið gull- og úrsmíðaverkstæði ásamt verslun. Frá árinu 2005 hefur húsið verið mikið endurnýjað. Fjallað verður um endurnýjun glugga og útihurða, hitakerfis og vatnslagna, raflagna, frárennslislagna og fleira.

Húsverndarstofa er fyrir húseigendur, iðnaðarmenn, arkitekta, námsmenn og allt áhugafólk um byggingarsögu og húsvernd. Að henni standa Iðan fræðslusetur, Minjastofnun Íslands og Borgarsögusafn Reykjavíkur.

Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið.

Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur).

Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins.

Öll bílastæði eru ókeypis.