Flóðreka - Repertoire
Dansverkstæðið, Hjarðarhagi 47, 101 Reykjavík Kort
mán 2. nóv 2026 23:00
Bústaðu viðburðinn!Dansverkstæðið kynnir Flóðreka repertoire námskeið með Aðaheiði Halldórsdóttur.
2. - 6. nóvember
Mán - fös kl. 11:00 - 14:00
Verð: 30.000- kr. / Félagsmenn Dansverkstæðisins fá 15% afslátt (25.500- kr)
Skráning: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSfWNEdG1yoL1cPFIZEJEsozLSkUupUDL583XoagLfiS76OTrA/viewform?usp=header
Um námskeiðið:
Stefnumót við danshöfund og efnivið sviðsverksins Flóðreka sem sett var upp af Íslenska dansflokknum á nýja sviði Borgarleikhússins í samstarfi við hljóð- og ljósaheim tónlistarmannsins Jónsa. Fimm sinnum þrír tímar saman í stúdíó þar sem þreifað verður á físískum lögmálum hreyfiefnisins og valdir hlutar verksins lærðir og unnir. Hver er uppsprettan og mótorinn, hvar hvílir meðvitundin í einstaklingnum og í sambandi hans við annan og til hvers er eiginlega verið að dansa?
Aðalheiður Halldórsdóttir er höfundur og dansari með nærri þriggja áratuga reynslu úr heimi sviðslista. Hún dansaði með Íslenska dansflokknum í um sextán ár og hefur komið að sköpun hátt í hundrað verka, smárra og stórra, sem flytjandi, danshöfundur og leikstjóri. Á þeirri leið hefur henni hlotnast að vinna með listafólki úr öllum kimum menningarinnar, þar á meðal Ohad Naharin, Ernu Ómarsdóttur, Margréti Bjarnadóttur, Ragnari Kjartanssyni og Anne Carson. Fyrir störf sín hefur hún hlotið bæði verðlaun og tilnefningar til Grímunnar, nú síðast fyrir Flóðreka, sem hún skapaði í samstarfi við Jónsa í uppsetningu Íslenska dansflokksins og hlaut fjórar tilnefningar. Aðalheiður er einnig ljóðskáld og vinnur á mörkum hreyfingar og texta.