Fjórar stjörnur - Heiðurstónleikar Björgvins Halldórssonar, Gunna Þórðar, Megasar og Magga Eiríks

Fjórar stjörnur - Heiðurstónleikar Björgvins Halldórssonar, Gunna Þórðar, Megasar og Magga Eiríks

Bíóhöllin, Vesturgata 27, 300 Akranes Kort

lau 7. nóv 2026 21:00

Bústaðu viðburðinn!

Miðar👉 https://tix.is/event/22443

Við heiðrum minningu og tónlistararf fjögurra goðsagna íslenskrar tónlistarsögu með glæsilegum tónleikum í Bíóhöllinni á Akranesi. Björgvin Halldórsson, Gunnar Þórðarson, Magnús Eiríksson og Megas hafa hver á sinn hátt, haft djúpstæð áhrif á íslenska dægurtónlist og mótað tónlistarsögu þjóðarinnar í meira en hálfa öld.

Lög á borð við Tvær stjörnur, Vetrarsól, Þó líði ár og öld, Ég er á leiðinni og Vertu ekki að plata mig verða meðal verka úr þeirra einstaka lagasafni sem munu hljóma á tónleikunum.

Sérstakur gestur verður Svala Björgvinsdóttir.

Hljómsveitina skipa:

Birgir Þórisson - Hljómborð

Jakob Grétar Sigurðsson - Trommur

Heiðmar Eyjólfsson - Söngur og kassagítar

Kristján Grétarsson - Gítar

Sigurþór Þorgilsson - Bassi