Fjölskyldusmiðja í kertamálun

Fjölskyldusmiðja í kertamálun

Bókasafn Mosfellsbæjar, Þverholt 2, 270 Mosfellsbær Kort

lau 28. nóv 2026 13:00

Bústaðu viðburðinn!

Hæglæti er bráðnauðsynlegt í öllum asanum í kringum jólin. Þess vegna er fátt betra en föndursmiðja með sínu besta fólki. Í smiðjunni málum við aðventukerti og förum því vel undirbúin og upplýst inn í desembermánuðinn.🎄

Það góða við að hanna sitt eigið kerti er að það gefur ímyndunaraflinu lausan tauminn. Sumir kunna mála jólahúfur á einmanaleg kerti, aðrir mála jólaköttinn eða hjartakerti. Það er ekkert rangt þegar það kemur að kertamálun!

Þátttakendur koma sjálfir með kerti til að mála en málning, tæki og tól verða aðgengileg á staðnum.

Umsjónarmaður smiðjunnar er Vilborg Bjarkadóttir, myndlistarmaður og þjóðfræðingur.

Við vonumst til að sjá ykkur í kertastuði.🕯️