Felix Bergsson les úr Leynifélag í lífsháska
Borgarbókasafnið | Menningarhús Árbæ, Hraunbær 119, 110 Reykjavík Kort
sun 22. nóv 2026 13:00
* 📚 🕵️♂️ ✨
Felix Bergsson kemur í heimsókn til okkar og les úr nýjasta ævintýri Freyju og Frikka - Leynifélag í lífsháska!
Fyrst komu sögurnar um Freyju og Frikka inn á Storytel en á síðasta ári kom fyrsta bókin, Drottningin af Galapagos, út í bókarformi. Nú er komið að nýjum ævintýrum tvíburanna ráðagóðu en að þessu sinni fara þau í sitt hvora áttina og lenda auðvitað í mögnuðum og æsispennandi ævintýrum ásamt vinum sínum í leynifélaginu Púkablístrunni. Leikurinn berst frá Reykjavík til Alsír og dularfull skuggavera undirbýr hræðileg skemmdarverk. Ná krakkarnir að bjarga málunum áður en allt fer í bál og brand?
Öll velkomin í skemmtilega lestrarstund!
Nánari upplýsingar veitir