Spjall með flytjendum - Seigla
Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
lau. 08.08.2026 19:30
Spjall með flytjendum - Seigla
Að tónleikum loknum bjóðum við gestum að staldra við og hitta flytjendur Seiglu yfir drykk og spjalli.
Þar gefst tækifæri til að halda tónlistinni gangandi í samtali: að ræða verkin, hugmyndirnar á bak við þau og upplifun kvöldsins í afslöppuðu og notalegu andrúmslofti. Hvort sem þú ert á leið á næstu tónleika kvöldsins eða vilt einfaldlega njóta augnabliksins, er þetta tilvalið tækifæri til að spjalla við listamennina, fá sér drykk og undirbúa sig fyrir næstu tónleika. Á barnum í Hnossi verður hægt að kaupa drykki og léttar veitingar.
–
Hátíðardagskrá Seiglu, upplýsingar um flytjendur og aðra viðburði má finna á www.seiglafestival.com og í hátíðartímaritinu Seiglazine.
Harpa er sérstakur styrktaraðili Seiglu 2026. Tónlistarhátíðin Seigla er einnig styrkt af Tónlistarsjóði, Styrktarsjóði SUT og Ruthar Hermanns, Ýli, Menningarsjóði FÍH, Listaháskóla Íslands og Hollvinum Seiglu.
Flytjendur
-
Seigla
Tónlistarhátíðin Seigla