Farsældardagur á Austurlandi
Austurbrú, Búðareyri 1, Reyðarfirði, Búðareyri 1, Reyðarfjörður Kort
fim 5. nóv 2026 11:00
Bústaðu viðburðinn!Farsældardagur á Austurlandi 2026
Hvernig stuðlum við að aukinni farsæld barna og fjölskyldna á Austurlandi?
Farsældarráð á Austurlandi býður til Farsældardags fimmtudaginn 5. nóvember þar sem við komum saman, miðlum reynslu og ræðum hvernig við getum áfram styrkt samstarf og þjónustu í þágu barna og fjölskyldna á Austurlandi.
📅 5. nóvember 2026
🕚 Kl. 11:00–15:00
📍 Fróðleiksmolinn á Reyðarfirði (Húsnæði Austurbrúar)
🥣 Súpa í boði í hádeginu!
📣 DAGSKRÁ:
11:00-11:05
Setning farsældardagsins
Anna Alexandersdóttir, sviðstjóri velferðar hjá Múlaþingi og formaður farsældarráðs á Austurlandi
11:05-11:45
Niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar 2026 fyrir Austurland
Ragný Þóra Guðjohnsen
Dósent á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Faglegur stjórnandi Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar
11:50-12:30
Varnargarður fyrir börn – virkjum þorpið
Páll Ólafsson framkvæmdarstjóri farsældar- og barnaverndarsviðs Barna- og fjölskyldustofu
Matur
13:15-13:35
Kynning frá tengilið
Magna Júlíana Oddsdóttir, deildarstjóri stoðþjónustu Nesskóla
13:40-14:00
Málstjóri í farsældarmálum barna: Hlutverk, áskoranir og tækifæri
Ingibjörg Þuríður Stefánsdóttir, ráðgjafi í barna og fjölskylduvernd hjá Múlaþingi og Helga Sjöfn Hrólfsdóttir ráðgjafi barna og ungmenna með fötlun hjá Múlaþingi.
14:05- 14:25
Reynsla heilbrigðiskerfisins að vinna í farsældinni
Björg Eyþórsdóttir, hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri farsældar hjá HSA
14:30-14:50
Reynsla notenda af samþættri þjónustu
Þórhildur Sigurðardóttir, Verkefnastjóri frístunda- og æskulýðsmála Vopnafjarðarhrepp
Fundarstjóri er Nína Hrönn Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri farsældarráðs á Austurlandi
🤝 Dagurinn er kjörið tækifæri til að efla samtal, deila þekkingu og styrkja tengsl þeirra sem vinna að farsæld barna og fjölskyldna á Austurlandi.
Við hlökkum til að sjá ykkur! 💛