EXTREME CHILL FESTIVAL 2027
fim 11. feb 2027 19:00
Tónlistarhátíðin Extreme Chill fer fram í Reykjavík dagana 11-13 Febrúar en þetta er 18 .árið sem hátíðin er haldin. Með því að færa hátíðina frá september yfir í dimmasta hluta vetrarins viljum við skapa henni enn skýrari sérstöðu og nýta einstakt andrúmsloft Reykjavíkur á þessum árstíma. Myrkur, norðurljós og íslenskt vetrarlandslag verður hluti af upplifun hátíðarinnar og kallast á við tónlist og sjónræna miðla.
Extreme Chill hátíðin er orðin ein af langlífustu tónlistarhátíðum Íslands enda hefur hún verið starfandi óslitið s.l. 17 ár. Hátíðin hefur vakið mikla athygli víða um heim og er orðin mjög miklivægur partur af tónlistarsenu íslands með sína sérstöðu sem er fókus á tilraunarkennda tónlist raf- og sveimtónlist. Hátíðin og starfið í kringum hana hefur leitt af sér fjölda útgáfa, tónleika, ferðalaga erlendis, samstarf við tónlistarmenn að ótöldum ógleymanlegum uppsetningum á hátíðum erlendis og innanlands sem eru bein afleiðing hátíðarinnar.
Early Bird Hátíðar passinn kostar aðeins 14.900 kr og gildir á alla 3 dagana. Miðasala inn á midix. Dagskráin verður kynnt Föstudaginn 18 Desember
“3 daga alþjóðleg raf- og tilraunatónlistarhátíð í Reykjavík þar sem íslenskt og erlent tónlistarfólk mætist í íslenskum vetri. Myrkur, norðurljós og vetrarstemning borgarinnar skapa hátíðinni einstaka umgjörð.”