Spjall með flytjendum - Seigla

Spjall með flytjendum - Seigla

Harpa | Hörpuhorn, Hörpuhorn, 101 Reykjavík Kort

fös. 07.08.2026 19:30

Að opnunartónleikum loknum bjóðum við gestum að staldra við og hitta flytjendur Seiglu yfir drykk og spjalli.

Þar gefst tækifæri til að halda tónlistinni gangandi í samtali: að ræða verkin, hugmyndirnar á bak við þau og upplifun kvöldsins í afslöppuðu og notalegu andrúmslofti. Á barnum í Hörpuhorni verður hægt að kaupa drykki og léttar veitingar.


Hátíðardagskrá Seiglu, upplýsingar um flytjendur og aðra viðburði má finna á www.seiglafestival.com og í hátíðartímaritinu Seiglazine.

Harpa er sérstakur styrktaraðili Seiglu 2026. Tónlistarhátíðin Seigla er einnig styrkt af Tónlistarsjóði, Styrktarsjóði SUT og Ruthar Hermanns, Ýli, Menningarsjóði FÍH, Listaháskóla Íslands og Hollvinum Seiglu.


Flytjendur

  • Seigla
    Seigla

    Tónlistarhátíðin Seigla