Polskojęzyczne zwiedzanie Viðey

Polskojęzyczne zwiedzanie Viðey

Viðey / Videy Island (History Museum), Skarfagarðar, 105 Reykjavík, Iceland, Skarfagarðar 4, 104 Reykjavík Kort

sun. 16.08.2026 13:00

Hefur þú komið í Viðey? Sunnudaginn 16. ágúst kl. 13:00-15:30 verður leiðsögn á pólsku í Viðey. Marta Wieczorek, aðstoðarskólastjóri Pólska skólans í Reykjavík, sér um leiðsögnina.

Viðey er frábær staður til að njóta útiveru í einstöku umhverfi. Þar er mikil saga, fjörur og útilistaverk.

Viðey er eyja og til að komast þangað þarf að sigla með ferju. Þátttaka í leiðsögninni er ókeypis en kaupa þarf miða í ferjuna. Ferjan siglir frá Skarfabakka sunnudaginn 16. ágúst kl. 13:15 og til baka kl. 15:30 en þið getið verið lengur ef þið viljið. Við mælum með að kaupa miða fyrir fram á vef Eldingar: https://elding.is/videy-ferry-skarfabakki

Aðgengi: Til að komast í ferjuna er gengið um landgang sem er misbrattur eftir sjávarföllum. Göngustígar í Viðey eru ýmist malarstígar eða slóðar í graslendi. Hjálparhundar eru velkomnir.

Strætisvagnar: Um helgar er næsta stoppistöð LHÍ Laugarnesi (16 mín. gangur frá ferju).

Verið öll velkomin!

📸Aaron C. Bullion

Flytjendur

  • Safnfræðsla Borgarsögusafns
    Safnfræðsla Borgarsögusafns

    Fréttasíða fræðslustarfs Borgarsögusafns Reykjavíkur

    Fræðslustarf Borgarsögusafns tekur mið af Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, Aðalnámskrá og stefnu Reykjavíkurborgar sem og öðrum innlendum og alþjóðlegum stefnum í menningarmálum.

  • Borgarsögusafn Reykjavíkur / Reykjavík City Museum
    Borgarsögusafn Reykjavíkur / Reykjavík City Museum

    Eitt safn á fimm frábærum stöðum. Borgarsögusafn heyrir undir Reykjavíkurborg.

  • Marta Wieczorek
    Marta Wieczorek

    varaþingmaður á Alþingi Íslendinga og aðstoðarskólastjóri Pólska skólans í Reykjavík