Hinsegin Pub Quizz
SKÝ Restaurant & Bar, Ingólfsstræti 1, 101 Reykjavík Kort
mið. 05.08.2026 19:00
Reykjavík Pride er handan við hornið og við hlökkum til að bjóða enn á ný upp á okkar árlega Hinsegin Pub Quiz á SKÝ Lounge & Bar.
Hægt er að bóka sér borð á Dineout:
https://www.dineout.is/is/sky/event/queerpubquiz26
Safnið saman liði (mesta lagi 4) og reynið á þekkinguna á hinsegin sögu, kvikmyndum, tónlist, poppmenningu, táknmyndum og ýmsu skemmtilegu sem tengist LGBTQIA+ samfélaginu. Kvöldið verður létt, líflegt og fullt af góðri stemningu.
Spurningakeppninni stýra Ormur Guðjónsson og Michy, 5.000 ára dragdrottningin.
Ormur er heiftarlega hýr kvikmyndanördi, háskólanemi og allra handa maður sem hefur lengi haft sérstakan áhuga á kvikmyndum, ekki síst hinsegin kvikmyndum. Við hlið hans verður Michy, sem hefur lifað í gegnum 5.000 ára sögu mannkyns og mun aðstoða hann við að komast að því hversu mikið þið vitið í raun.
Hvort sem markmiðið er að sigra spurningakeppnina eða einfaldlega eiga skemmtilegt kvöld í tilefni af Pride eru öll hjartanlega velkomin.
//
Flytjendur
-
MichyA 5000-year-old drag queen and host of the event.