Din våte drøm - Emma - Ívar Klausen @Smekkleysa

Din våte drøm - Emma - Ívar Klausen @Smekkleysa

Smekkleysa plötubúð, Hverfisgata 32, 101 Reykjavík Kort

lau 19. sep 2026 19:00

Þann 19. september koma hljómsveitirnar Emma, Ívar Klausen og Din våte drøm fram í Smekkleysu.

Tónleikarnir eru frá 19-22

🪎Pay what you can

Ívar Klausen(IS)

Ívar Klausen er mjög virkur sem tónlistarflytjandi, session spilari og tónskáld en hann kemur fram á fjölmörgum og fjölbreyttum verkefnum og tónleikum á ári hverju. Efnisskráin verður af léttari kantinum í anda sálarskotinnar popp tónlistar af fyrstu sóló plötu Ívars sem kom út í apríl ásamt splúnku nýjum óútgefnum lögum bæði í dúr og moll sem verða leikin á stór og lítil hljóðfæri. Þetta verður Kúl Klausen í túrbó NÆS fýling. Fjölraddanir, spila gleði og húmor hefur verið einkennandi á tónleikum Ívars.

Komið fagnandi!

Din våte drøm (NO)

Din Våte Drøm (Blautur draumur) er rokkhljómsveit frá Osló sem spilar gítardrifið rokk með norskum textum. Fyrsta plata sveitarinnar, Rockemusikk, fékk góðar undirtektir og hefur hljómsveitinni verið hrósað fyrir „trausta og oft æsispennandi frumraun“ og fyrir texta sem „hvetja heilafrumur hlustandans til að vakna“ (Dagsavisen, Popklikk)

Eftir stærstu tónleika sína til þessa á Parkteateret í Osló og tónleika í Kaupmannahöfn, Malmö, Berlín, Þrándheimi og víðar, heldur Din Våte Drøm áfram fyrstu alþjóðlegu tónleikaferð sinni. Næsti viðkomustaður er Reykjavík, þar sem sveitin stígur á svið á Smekkleysu.

Emma (IS)

Emma flytur folk-tónlist yfir víðtækan hljóðheim. Hljómsveitina stofnuðu systkinin Sindri Snær Ómarsson og Breki Hrafn Halldóru Ómars og skipar einnig Ásgeir Kjartansson og Óðal Hjarn Grétu. Saman hafa þau samið fjölbreytt samansafn af einlægri tónlist og gáfu út sína fyrstu plötu, Halidome, sumarið 2025. Hljómsveitin hefur vakið athygli fyrir dýnamíska og grípandi flutninga. Þau munu spila meðal annars á Iceland Airwaves 2026 og Swn Festival 2026. Hljómsveitin og platan Halidome hlaut hvatningarverðlaun Reykjavík Grapevine fyrir að vera leyndur fjarsjóður (Best Kept Secret) í íslenskri tónlist á síðasta ári.