Bogomil Font og Greiningadeildin

Bogomil Font og Greiningadeildin

Græni hatturinn, Hafnarstræti 96, 600 Akureyri Kort

fös. 07.08.2026 21:00

ISK 8900.00
Miðar / Skráning

„Það er allt svo næs fyrir norðan“ Bogomil Font og Greiningardeildin á Græna hattinum 7. ágúst Félagarnir úr Hljómskálanum, þeir Sigtryggur Baldursson, Bragi Valdimar og Kiddi hjálmur fara fyrir þessari fjölskipuðu og hoppandi fersku gleðisveit og mæta með glænýja sumarplötu í farteskinu sem kallast „Haf þú ekki áhyggjur af því“. Þar er að finna ýmis hressileg kulda-kalypsólög sem þeir hafa sent frá sér undanfarin misseri. Sjóddu frekar egg, Skítaveður, Þú trumpar ekki ástina og Þú stendur alltaf með mér hafa spriklað mikið í útvarpi og nú er komið að því að sjá og heyra þau flutt á besta sviði landsins, á Græna hattinum — ásamt fleiri ylvolgum sumarsmellum úr safni sveitarinnar. Forsalan hefst sun. 5.júlí kl.12.00 á grænihatturinn.is