Fatabreytingar og kennsla á saumavél
Bókasafn Kópavogs | Aðalsafn, Kort
fim. 30.07.2026 14:00
Á fimmtudögum í sumar á milli 14.00-16.00 ætlar Alex, starfsnemi hjá okkur á bókasafninu frá Þýskalandi að bjóða upp á kennslu á saumavélarnar okkar góðu og aðstoða gesti við að laga og breyta fötum.
Kennslan fer fram á ensku.
Nauðsynlegt er að skrá sig og taka fram hvaða dagur (9. júlí, 16. júlí, 23. júlí, 30 júlí, 6. ágúst eða 13. ágúst) og tími (14.00 eða 15.00) hentar með því að senda póst á bokasafn@kopavogur.is
Setjið í efnislínu: Berist til Alex – saumakennsla. Endilega takið fram þegar þið skráið ykkur hvað þið viljið gera á saumavélina, hvaða verkefni þið ætlið að koma með svo kennarinn geti undirbúið sig.
Gott væri ef pósturinn væri á ensku.