Brumm Brumm x Prent á krakka | Harpa býður heim
Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
lau. 22.08.2026 13:00
Brumm Brumm er farandprentsmiðja og gallerí, staðsett í gömlum húsbíl. Bíllinn ferðast á milli staða til að sýna gestum og gangandi prentlistina sem lifandi uppákomu og mun gleðja vegfarendur á Hörputorgi á Menningarnótt, frá 13 - 18.
Í ár býður Brumm Brumm einnig upp viðburðinn Prent á krakka. Þar eru myndir silkiprentaðar beint á húð líkt og tattoo-límmiðar og gestir á öllum aldri fá tækifæri til að taka virkan þátt í listsköpuninni sjálfri. Þannig má einnig kynnast tilraunum í silkiprenti sem Brumm Brumm hefur verið að þróa síðastliðið ár. Viðburðurinn “Prent á krakka“ verður frá kl 14 til kl 16.
Brumm Brumm hefur sérhæft sig í að skapa prentverk sem vekja upp fortíðarþrá. Þar er oft notast við umbúðahönnun sem hefur haldist óbreytt í mörg ár. Notkun á klassískum prentunaraðferðum, litum og aðferðum fléttast saman á einstakan hátt til að vekja upp tilfinningu um liðna tíma, líkt og tímalaus sjarminn sem einkennir gamla húsbílinn.
Dagskrá Menningarnætur á Hörputorgi er í boði Hörpu og Landsbankans.
Flytjendur
-
Brumm Brumm
Farandprentsmiðja og gallerí sem sýnir prentlistina sem lifandi uppákomu.
-
Menningarnótt
Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar.