Child Eater - 10 ára afmælissýning!
Bíó Paradís, Hverfisgata 54, 101 Reykjavík Kort
lau 14. nóv 2026 21:00
Í nóvember fögnum við tíu ára frumsýningarafmæli íslensk-amerísku hryllingsmyndarinnar CHILD EATER, í leikstjórn Erlings Óttars Thoroddsen (Kuldi, Rökkur, The Piper).
Child Eater er eins konar ástarbréf til hryllingsmynda níunda og tíunda áratugarins og segir frá barnfóstrunni Helen og þeim ógöngum sem hún lendir í þegar Lucas litli hverfur sporlaust úr rúminu sínu eina nótt.
Hún rekur slóð hans djúpt inn í skóglendi þar sem Robert nokkur Bowery er sagður hnupla börnum til þess að éta úr þeim augun. Í kjölfarið fer af stað martraðakennd og óhugnanleg atburðarás þar sem enginn er óhultur, hvorki fullorðnir né börn.
Á undan myndinni verður sýnd samnefnd stuttmynd Erlings sem var kveikjan að myndinni í fullri lengd. Stuttmyndin var sýnd á fjölda kvikmyndahátíða, þar á meðal SXSW.
Erlingur Óttar Thoroddsen verður viðstaddur sýninguna ásamt tónskáldi myndarinnar, Einari Sv. Tryggvasyni og munu þeir svara spurningum úr sal að sýningu lokinni - og skála á Regnbogabarnum fyrir þá gesti sem vilja staldra við aðeins lengur.