Psycho - Föstudagspartísýning
Bíó Paradís, Hverfisgata 54, 101 Reykjavík Kort
fös. 31.07.2026 21:00
Psycho segir frá Marion Crane sem starfar á skrifstofu. Kærasti hennar, Sam, getur ekki gifst henni vegna tekjuleysis svo dag nokkurn ákveður Marion að stela peningum frá vinnuveitanda sínum, fara úr bænum og byrja nýtt líf með Sam.
Á leiðinni ákveður hún að gista á Bates-vegahótelinu þar sem hún hittir feiminn og hlédrægan mann að nafni Norman Bates.
Psycho sló öll aðsóknarmet og Hitchcock notaði nýstárlegar aðferðir til að segja æsispennandi sögu sem hefur staðist tímans tönn.
Sjáumst á geggjaðri föstudagspartísýningu 31. júlí kl 21:00!