Á menningarnótt býður HOG Chapter Iceland, Félag Harley Davidson eigenda á Íslandi einstaklingum upp á að vera farþegar á mótorhjólum sínum í akstri um miðborginni . Keyrslan hefur verið í áraraðir og byrjar frá Alþingishúsinu. Keyrt verður upp Suðurgötu og niður Tjarnargötu.
Ferðin kostar 1500 kr. á einstakling og rennur óskipt til styrktar UMHYGGJU, félags til stuðnings langveikum börnum. Keyrslan hefst kl.14:00 og stendur til kl.16:00
Góðgerðarakstur á Menningarnótt Harley Davidson
Alþingishúsið, Kirkjustræti 12, 101 Reykjavík Kort
lau. 22.08.2026 14:00
Flytjendur
-
Menningarnótt
Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar.