Suð er opið hljóðverk þar sem gestir skapa sjálfir lifandi hljóðverk með því að snerta, fikta í og spila á óvenjuleg Suð-hljóðfæri.
Hljóðin ferðast í gegnum Suð-hátalara sem magna þau upp, bjaga og umbreyta þeim á óútreiknanlegan hátt.
Verkið þróast stöðugt eftir því sem fleiri taka þátt. Forvitni, tilraunir og sameiginleg sköpun eru í forgrunni, þar sem áhorfendur verða þátttakendur og tónlistin verður til í augnablikinu.
Litla Seigla: Suð
Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
lau. 08.08.2026 12:00
UM STÚDÍÓ SUÐ
Markús Bjarnason er hönnuður og listamaður með menntun frá Listaháskóla Íslands. Í verkum sínum sameinar hann hljóð, hönnun og myndlist þar sem áhersla er lögð á skynjun og upplifun rýmis. Markús og Heiðbjört Arney Höskuldsdóttir stofnuðu saman Stúdíó Suð, listadrifna hönnunarstofu sem vinnur á mörkum hönnunar og listar með sérstaka áherslu á myndrænt- og hljóðrænt suð.

Flytjendur
-
Seigla
Tónlistarhátíðin Seigla
-
Markús BjarnasonMusical performance