Maideniced
Græni hatturinn, Hafnarstræti 96, 600 Akureyri Kort
fös. 09.10.2026 21:00
Hljómsveitin Iron Maiden gaf út hvert stórvirkið á fætur öðru á níunda áratug síðustu aldar, og fyrir 40 árum síðan gaf hún út plötuna Somewhere in Time, sem þykir uppáhald margra Maiden aðdáenda.
Íslenska heiðurssveitin MaidenIced hefur helgað sér það verkefni að flytja tónlist meistaranna á sviði, og verður Somewhere in Time því flutt í heild sinni á tónleikum í bland við vel valin lög af ferli Járnfrúarinnar.
Í þetta sinn munum við hefja gleðina fyrir norðan og heimsækja Græna Hattinn í fjórða sinn þann 9. Október. Þetta er viðburður sem enginn aðdáandi Iron Maiden ætti að láta fram hjá sér fara
Flytjendur
-
MaidenIced
Heiðurshljómsveit sem flytur lög af Iron Maiden.