Brot af SÝNI
Norræna húsið, Sæmundargata 11, 102 Reykjavík Kort
sun 8. nóv 2026 10:00
Bústaðu viðburðinn!Í tilefni af pallborðinu Narrative Sovereignty og sýningu heimildarmyndarinnar Orsugiak (Hið hvíta gull Grænlands) í Norræna húsinu verða sýnd nokkur verk frá sýningunni SÝNI, sem sett var upp í Verksmiðjunni á Hjalteyri sumarið 2026.
Titillinn vísar til leiðangra geimfara Apollo 11, sem æfðu sig í að lesa í steinefni og landslag á Íslandi áður en ferðinni var heitið til tunglsins. Við tunglendinguna fengu þeir fyrirmæli um að safna sýni af yfirborði tunglsins sem fyrst, ef eitthvað skyldi fara úrskeiðis í leiðangrinum. Frammi fyrir óvissri framtíð spyr sýningin hvert gæti verið varasýni jarðar og leitar svara í álinu, efni sem lengi hefur verið samofið hugmyndum um framfarir og framtíð.
Kalaallit Nunaat (krýólít), Ísland (orka og álbræðsla) og Jamaíka (báxít) mynda saman þríhyrning í alþjóðlegri álframleiðslu, þar sem hver þeirra hefur í gegnum tíðina verið auðlindajaðar í þágu hernaðarlegra og iðnaðarlegra hagsmuna. Í stað þess að fylgja þeirri rökvísi sem byggir á „finna, grípa og fara,“ nálgast verkin námuna ekki sem holu í jörðinni heldur sem lifandi net tengsla sem bindur fjarlæga staði saman. Í þessu neti tekur sýningin upp spurningu fræðimannsins T. J. Demos um hver hafi rétt til að skapa framtíðina og spyr hvar sá réttur sé fólginn í heimum sem stöðugt eru grafnir upp til að viðhalda henni.
Listamenn: Contact Point Collective (Bryndís Björnsdóttir, Olando Whyte & Rut Karin Zettergren), Naja Dyrendom Graugaard & Whyte&Zettergren
Sýningarskrá Contingency Sample
Sýningin í Verksmiðjunni var styrkt af: Myndlistarsjóð, Nordic Culture Fund, Nordic Culture Point Mobility,
Danish Art Council, SSNE, Hörgársveit og Svensk-isländska samarbetsfonden.
Forsíðumynd: Brot af fyrstu álslettunni úr álveri Norðuráls á Grundartanga í Hvalfirði, þegar álverksmiðjan
tók til starfa þann 11. júní 1998.
—
Aðgengi í andyri Norræna hússins er gott.
Frekari aðgengisupplýsingar er að finna á heimasíðu.