Björn Thoroddsen Band - Múlinn Jazzklúbbur

Björn Thoroddsen Band - Múlinn Jazzklúbbur

Harpa | Björtuloft, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

mið 25. nóv 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með haustdadagskrá sína með spennandi tónleikum miðvikudaginn 25. nóvember kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum kemur fram gítarleikarinn Björn Thoroddsen ásamt hljómsveit. Björn Thoroddsen hefur verið einn af atkvæðamestu tónlistarmönnum Íslands s.l ár og hefur hlotið ýmsar viðurkenningar á ferli sínum. Bjössi Thor, en það er hann yfirleitt kallaður, hefur verið að hasla sér völl í hinum stóra gítarheimi á síðustu árum og leikið með mörgum af þekktustu gítarleikum heims. Í þetta skipti kemur Bjössi fram tríói sínu sem er skipað Fúsa Óttars, trommuleikara og Jóni Rafnssyni bassaleikara. Bjössi fer yfir gítarsöguna og spilar og jafnvel syngur, nokkur af sínum uppáhalds lögum. Það verða líka sagðar sögur og ekkert dregið undan.

Spennandi haustdagskrá Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum fram í miðjan desember. Múlinn er að á sínu 29. starfsári en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans. Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu. Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna. Tónleikar Múlans fara fram á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 5200 og 3800 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu