DRUSLUGANGAN 2026 // THE REYKJAVÍK SLUT WALK 2026
Hallgrímstorg, Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík Kort
lau. 25.07.2026 14:00
Elsku druslur,
"Tími þagnarinnar er löngu liðinn" - Ólöf Tara
Þann 25. júlí munum við ganga í fjórtánda sinn frá Hallgrímskirkju til stuðnings þolenda kynferðisofbeldis og í andstöðu við upphafðri nauðgunarmenningu og þolendaskömmun sem heldur áfram að menga samfélagið okkar.
Druslugangan er samstöðuganga með þolendum kynferðislegs ofbeldis sem er orðinn rótgróinn hluti af reykvíska sumrinu, en hún var fyrst gengin árið 2011. Markmið göngunnar er að losa þolendur kynferðislegs ofbeldis undan skömminni og byrðinni sem ofbeldi skilur eftir sig og búa til öruggt rými uppfullt af samstöðu og kærleika. Þolendur af öllum kynjum og öll þau sem vilja sýna stuðning sinn í verki eru hjartanlega velkomin.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Flytjendur
-
DrusluganganDRUSLUGANGAN 26. JÚLÍ 2025