Balfour Reparations at Reykjavík Dance Festival 2026

Balfour Reparations at Reykjavík Dance Festival 2026

Ráðhús Reykjavíkur, Tjarnargata 11, 101 Reykjavík Kort

fim 12. nóv 2026 17:00

Bústaðu viðburðinn!

Farah Saleh

Balfour Reparations

Fimmtudagur 12. nóvember 17:00 - 17:40

Tjarnarsalur – Ráðhús Reykjavíkur, Tjarnargata 11

Balfour Reparations (2026-2046) er áhrifamikið sviðsverk í formi fyrirlestrar þar sem rýnt er í arfleifð nýlendustefnu Breta í Palestínu. Í brennipunkti er Arthur James Balfour, forsætisráðherra (1902-1905) og utanríkisráðherra (1916-1919), og hvernig hann stuðlaði að því að neita Palestínufólki um pólitísk réttindi. Saleh sækir sér innblástur í heimildir og styðst við gagnrýna sagnalist (e. critical fabulation) og afrófúturisma þegar hún fléttar saman sagnfræði, skáldskap og fantasíu.

Árið 2046 komum við saman sem meðlimir sanngirnisbótanefndar til að velta fyrir okkur uppskálduðu afsökunarbréfi frá breskum stjórnvöldum árið 2026 þar sem þau lofa Palestínufólki sanngirnisbótum. Hvernig má gangast við slíkri ábyrgð? Hvað getur réttlæti haft í för með sér?

Farah Saleh er palestínskur dansari, danshöfundur og fræðikona búsett í Skotlandi. Hún nam tungumála- og menningarmiðlun á Ítalíu meðfram framhaldsnámi í samtímadansi. Síðan 2010 hefur hún tekið þátt í verkefnum víða um heim með Sareyyet Ramallah Dance Company (Palestínu), Royal Flemish Theatre og Les Ballets C de la B (Belgíu), Mancopy Dance Company (Danmörku/Líbanon), Siljehom/Christophersen (Noregi) og Candoco Dance Company (Bretlandi). Hún var staðarlistamaður hjá Dance Base í Edinborg árin 2017-2021 og árið 2023 lauk hún doktorsnámi frá Edinburgh College of Art. Árið 2024 hóf hún störf sem prófessor í Global Majority Performance við sviðslistadeild Glasgow University.

Frítt! Bóka þarf frímiða!

Aðgengi: Lyfta fer í Tjarnarsal frá bílastæðahúsi og frá þeirri hæð sem gengið er inn. Salerni fyrir fatlaða við innganginn hjá Tjarnargötu.

Sýningin er ekki hönnuð með döff eða blinda gesti í huga.

Valkvæð þátttaka áhorfenda.