Anya Shaddock | Iceland Airwaves Partner Event

Anya Shaddock | Iceland Airwaves Partner Event

Stúdentakjallarinn, Sæmundargata 4, 102 Reykjavík Kort

mið 4. nóv 2026 12:00

Bústaðu viðburðinn!

Í tilefni af Alþjóðadögum Háskóla Íslands verður boðið upp á ókeypis hádegistónleika með Anya Shaddock í Stúdentakjallaranum miðvikudaginn 4. nóvember kl. 12.00.

Anya er íslensk-amerísk söngkona, lagahöfundur og tónlistarframleiðandi, fædd í Boston en alin upp á Fáskrúðsfirði. Tónlist hennar blandar saman poppi, R&B, indie og djassi og einkennist af sterkum melódíum, fallegum raddútsetningum og tilfinningalegri dýpt. Hún vakti snemma athygli fyrir frumsamið efni og komst meðal annars í hóp 18 efstu keppenda í Idol á Íslandi.

Tónleikarnir eru haldnir í samstarfi við Iceland Airwaves og eru hluti af dagskrá Alþjóðadaga HÍ 4.-6. nóvember.

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin!