Slegið verður upp tangódansleik í Hörpu á Menningarnótt þar sem splunkunýir og þaulvanir dansarar fá að sameinast á dansgólfinu.
Á milli 16:30 og 17:00 bjóða tangódansararnir Bryndís Halldórsdóttir og Hany Hadya upp á kennslu í argentínskum tangó fyrir nýja dansara.
Frá 17 - 18 verður svo boðið upp á Milongu við undirleik argentínskrar tangótónlistar. Verið öll hjartanlega velkomin. Komið með eða án dansfélaga og í dansvænum skóm.
Tangóinn er ættaður frá Buenos Aires í Argentínu en í honum sameinast dans, tónlist og ljóð.
Tangó er spuni; hver dans er einstakur og verður til um leið og parið dansar saman. Spuninn byggir á grunnskrefum en býr jafnframt yfir ótal mörgum þáttum sem geta skapað aukna dýpt, mýkt og kraft sem gerir dansinn einstaklega áhugaverðan og spennandi.
Tangó er félagslegt fyrirbæri, fólk hittist á tangóstöðum, sem kallast Milonga til þess að dansa tangó. Argentínskur tangó hefur farið sigurför um allan heim og hefur orðið ævilangt áhugamál og ástríða fjölmargra
enda má nú dansa tangó í öllum heimshornum.
Bryndís og Hany eru fyrstu atvinnukennararnir á sviði tangós á Íslandi og hafa gegnt lykilhlutverki í að byggja upp tangósenu á Íslandi. Þau hafa dansað tangó saman um langt skeið og numið hjá mörgum af helstu tangókennurum heims. Þau eru stofnendur og kennarar við Tangóstúdíó.
Flytjendur
-
Menningarnótt
Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar.