Aðalfundur SHKÍ 2026

Aðalfundur SHKÍ 2026

Í streymi, , Reykjavík Kort

fim 12. nóv 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Aðalfundur Sleðahundaklúbbs Íslands verður haldinn 12. nóvember 2026 kl. 20:00 í gegnum Microsoft Teams. Linkur að fundi verður birtur síðar.

Dagskrá:

1. Skýrsla stjórnar

2. Gjaldkeri leggur fram reikninga til samþykktar

3. Móttaka framboða í stjórn

4. Kosning

5. Tillögur að lagabreytingum

6. Önnur mál.

Óskum eftir þremur stjórnarmönnum og tveimur varamönnum. stjórnarmenn eru tvö ár í stjórn og varamenn eitt ár í stjórn.

Þeir sem vilja bjóða sig fram mega senda framboð sitt á stjorn@sledahundar.is

Tillögur að lagabreytingum og erindi sem falla undir liðin önnur mál má senda á stjórn á netfangið stjorn@sledahundar.is

Félagar þurfa að hafa greitt félagsgjald vegna komandi árs til að hafa atkvæðisrétt á fundinum og vera kjörgengir.

Félagsgjöld verða fljótlega birt í heimabanka félaga, árgjaldið er 3.000 kr.

Ef einhver hefur ekki fengið rukkun um félagsgjöldin fyrir aðalfund, vinsamlegast sendið póst um það í stjorn@sledahundar.is