Íslenski dansflokkurinn á ferð um Hörpu | Harpa býður heim
Harpa | Hörpuhorn, Hörpuhorn, 101 Reykjavík Kort
lau. 22.08.2026 17:30
Á Menningarnótt gefst gestum Hörpu tækifæri til að kynnast Íslenska dansflokknum í óvæntum og lifandi innskotum víðs vegar um húsið.
Klukkan 17:30 hefst viðburður í Himnastiganum. Þaðan liggur leiðin niður í Hörpuhorn þar sem dansarar Íslenska dansflokksins fylla rýmið af orku með kraftmiklu broti úr verkinu Þar sem við mætumst.
Gestir og gangandi mega búast við því að hreyfingin smiti út frá sér og dragi jafnvel einhverja út á dansgólfið.
Flytjendur
-
Menningarnótt
Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar.