Blómvendir beint úr beði - Blómvandasmiðja

Blómvendir beint úr beði - Blómvandasmiðja

Árbæjarsafn, Kistuhylur 4, 110 Reykjavík Kort

sun. 16.08.2026 13:00

Sunnudaginn þann 16. ágúst kl. 13-16 eiga gestir kost á að eignast blómvönd beint úr beði 💐

Blómdís blómahönnuður kennir gestum hönnun og samsetningu blómvanda úr sumarblómum sem hafa verið ræktuð á Árbæjarsafni í sumar.

Dillonshús café verður opið með dýrindis veitingar á boðstólum í notalegu andrúmslofti.

Dagskráin stendur frá klukkan 13-16 en safnið er opið 10-17.

Öll velkomin!

Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið.

Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur).

Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins.

Öll bílastæði eru ókeypis.

Flytjendur