Á milli BNA og ESB

Á milli BNA og ESB

Borgarbókasafnið Spönginni, Spöngin 41, 112 Reykjavík Kort

mán 16. nóv 2026 16:30

Bústaðu viðburðinn!

Fræðakaffi er að þessu sinni helgað heimsmálunum. Grænland hefur verið í brennidepli síðustu mánuði og mun Valur Gunnarsson ræða stöðu þess, Íslands og fleiri ríkja.

Á milli risahagkerfa Bandaríkjanna og Evrópu hefur nú myndast nýtt svæði sem tilheyrir hvorugum og spannar allt frá efnahagsstórveldum á borð við Bretland og Kanada, hinn ríka Noreg og svo dvergþjóðir á borð við Færeyjar, Grænland og Ísland.

Hvað felst í þessari nýju stöðu mála? Eftir lok kalda stríðsins varð til álíka svæði á milli ESB og Rússlands. Getum við lært eitthvað af þeirri sögu?

Valur Gunnarsson er sagnfræðingur og hefur skrifað fjölda bóka, þar á meðal Bjarmalönd og Grænland og fólkið sem hvarf. Nýjasta verk hans nefnist Frelsisbjarmar og fjallar um Bandaríkin á öldinni okkar.

Fræðakaffi er viðburðaröð sem fer fram á Borgarbókasafninu í Spönginni og hefur notið mikilla vinsælda.

https://new.borgarbokasafn.is/fraedakaffi-i-sponginni

Nánari upplýsingar:

Katrín Guðmundsdóttir, Borgarbókasafninu Spönginni

katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is

Valur Gunnarsson, sagnfræðingur

valurgunnars@gmail.com