Stuðningshópur fyrir fólk sem á foreldra með heilabilun
Alzheimersamtökin, Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður Kort
mið. 19.08.2026 16:30
Afkomendur eru fjölbreyttur hópur með ólíkar þarfir en á það sameiginlegt að eiga ástvin heima, í dagþjálfun eða á hjúkrunarheimili. Hóparnir byggjast á hugmyndafræði jafningjastuðnings og er markmiðið með samverunni að hittast, spjalla og deila reynslunni. Stuðningur annarra í svipuðum aðstæðum getur bætt líðan og dregið úr streitu. Engin skráning og öll velkomin. Stuðningshópurinn er í umsjón Brynhildar Jónsdóttur sálfræðings. Eftir mastersnám starfaði Brynhildur á Minnismóttökunni á Landakoti við taugasálfræðilegar greiningar á fólki sem þangað leitaði vegna gruns um byrjandi heilabilun. Brynhildur starfaði einnig sem klínískur sálfræðingur á Áfalla- og sálfræðimiðstöðinni þar sem hún sinnti greiningum og meðferð á sálrænum vanda hjá fullorðnum.
Flytjendur
-
Brynhildur Jónsdóttir
Sálfræðingur sem sér um stuðningshópinn.
-
Alzheimersamtökin
Félag einstaklinga með heilabilun, aðstandenda og velunnara þeirra síðan 1985.