Sólmyrkvaleikar
Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
lau. 22.08.2026 16:00
Sólmyrkvaleikar: Sögur söngvar og sjónarspil fyrir fjölskylduna
Var þetta úlfur sem gleypti sólina eða flaug risastór dreki hjá?
Vorið 2026 komu börn frá öllum Vestfjörðum saman í skapandi smiðjum sem hverfðust um sólmyrkvann sem framundan var. Þetta mikla undur var skoðað út frá ólíkum sjónarhornum lista, vísinda og hönnunar og til urðu glæný lög, textar og stuttmyndir eftir börnin, innblásin af „stystu nótt í heimi.
Á Menningarnótt í Hörpu, sem jafnframt er 15 ára afmæli Hörpu, bjóðum við gestum að njóta Sólmyrkvasöngva. Þar verða flutt lög, ljóð og stuttmyndir barnanna við sjónarspil skuggaleikhúss. Ingibjörg Fríða gægist líka í Þjóðsögukistuna og skoða sögur frá öllum heimshornum um sólmyrkvann. Af nægu er að taka því áður en mannfólk fékk vísindalegar útskýringar á þessu stórkostlega náttúrufyrirbærireyndi það að skilja það í gegnum þjóðsögur og goðsögur!
Norðurljós, klukkan 14:00 – 14:40 & klukkan 16:00 – 16:40.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Fram koma Krakkakór ÞYKJÓ, dúett Sigga&Ingibjargar og hljómsveit. Listræn stjórn: ÞYKJÓ og Siggi&Ingibjörg. Framleiðandi: Vestfjarðarstofa og Púkinn Barnamenningarhátíð.
Styrkt af Barnamenningarsjóði, Vísindasmiðjunni.
„Jörðin snýst hraðar en tunglið,
myrkur og skuggi þess búa til nótt.
Þegar úlfur gleypir birtu sólar
og býr til kórónu alheimsins.“
Flytjendur
-
Siggi & Ingibjörg
Tónlistarhjón, dýnamískt dúó, malt og appelsín, stef og strengur.
-
Menningarnótt
Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar.