Blómstrandi bókasmiðja / Book Workshop
Listasafn Íslands, Listasafn Árnesinga - LÁ Art Museum, Austurmörk 21, Hveragerði Kort
fös. 14.08.2026 14:00
Bæjarhátíðin Blómstrandi dagar er haldin hátíðleg í Hveragerði dagana 13.-16. ágúst með fjölbreyttri viðburðadagskrá.
Föstudaginn 14. ágúst verður opin bókasmiðja á kaffihúsi Listasafns Árnesinga.
Við lærum að búa til einfalda bók úr allskonar pappír. Það má koma með pappír að heiman en einnig verður nægur efniviður á staðnum. Þú getur teiknað og skrifað sögu eða búið til persónulega skissubók.
Laurine, starfsnemi frá Frakklandi, leiðir smiðjuna. Hún talar ensku og frönsku.
Smiðjan er öllum opin, velkomið að koma við á milli kl. 14 og 16. Aðgangur er ókeypis og ekki þarf að skrá sig.