Langt út / Far out - Tríó Moritz Christiansen

Langt út / Far out - Tríó Moritz Christiansen

Sláturhúsið Menningarmiðstöð, Kaupvangur 9, 700 Egilsstaðir Kort

lau. 08.08.2026 20:00

Í sumar heldur saxófónleikarinn Moritz Christiansen í tónleikaferðalag um sitt fyrrum heimaland, Ísland, ásamt tríói sínu frá Hamborg. Í upphafi ferðarinnar mun tríóið vinna að nýrri tónlist, sem þau munu síðan flytja á ýmsum stöðum víðs vegar um landið og taka upp í hljóðveri í lokin. Tónlistin flokkast sem norrænn djass og "ambient” þar sem áhersla er lögð á skýrar laglínur og það að segja sögur í gegnum tónlist.

Eftir tónleika í Reykjavík og á Akureyri er Sláturhúsið þriðji áfangastaður ferðarinnar.

Auk Moritz skipa tríóið þeir Alex Petratos trommuleikari og Anton Deyß gítarleikari.

Miðaverð kr 3000