ÞAU í Dalbæ í Unaðsdal (Snjáfjallasetur)

ÞAU í Dalbæ í Unaðsdal (Snjáfjallasetur)

Dalbær - Snjáfjallasetur í Unaðsdalur, , Dalbær - Snjáfjallasetur í Unaðsdalur Kort

þri. 28.07.2026 20:00

ÞAU spila í sumar
Í DALBÆ Í UNAÐSDAL
(SNJÁFJALLASETRINU)

🗓 Þriðjudagskvöldið 28. júlí
🕘 Tónleikar hefjast kl. 20:00
🎟️ Frítt inn - Frjáls framlög

ÞAU eru söng- og leikkonan Rakel Björk og gítar- og trommuleikarinn Gaddi.

Tær rödd Rakelar mætir grófum gítarleik Gadda í frumsamdri tónlist við íslensk ljóð, þar sem áhrif úr rokki, indí, jazzi og poppi fléttast saman. Með looperum og fjölbreyttum effektum á raddir og hljóðfæri skapa ÞAU lifandi og óvæntan hljóðheim á sviði, þar sem aðeins tveir tónlistarmenn fylla rýmið af tónlist.

ÞAU hafa sent frá sér plöturnar ÞAU taka Vestfirði og ÞAU taka Norðurland, sem hafa hlotið góðar viðtökur, og vinna ÞAU nú að þriðju plötunni, ÞAU taka Suðurland.

ÞAU komu nýverið fram á HEIMA í Hafnarfirði, á Midgard og á listahátíðinni Frjó á Siglufirði, og halda nú ferðalaginu áfram um landið!

🌻🌻🌻🌻

ÞAU á miðlunum:
☀️☀️☀️☀️☀️

ÞAU spila í sumar

Tónleikadagskrá:

22. apríl (mið) - ÞAU á HEIMA í Hafnarfirði
5. júní (fös) - ÞAU og Valborg Ólafs í Midgard
10. júlí (fös) kl. 21:00 - ÞAU á Frjó Listahátíð - Alþýðuhúsið Siglufirði (miðasala við hurð/hátíðarpassi)
22. júlí (mið) kl 21:15 - ÞAU í Heydal (frítt inn - frjáls framlög)
25. júlí (lau) kl. 20:00 - Bríet Vagna og ÞAU í Kómedíuleikhúsinu í Haukadal (https://www.midix.is/.../briet-vagna-og-thau-i.../eid/1126)
26. júlí (sun) kl. 14:00 - 19:45 - ÞAU á Hesteyri (miðasala á hornstrandaferdir.is)
28. júlí (þrið) kl. 20:00 - ÞAU í Dalbæ í Unaðsdal - (frítt inn - frjáls framlög)
30. júlí (fim) kl. 21:15 - ÞAU í Síldarverksmiðjunni á Djúpavík - (frítt inn - frjáls framlög)
6. ágúst (fim) kl. 20:30 - ÞAU á Gísli, Eiríkur og Helgi á Dalvík (frítt inn - frjáls framlög)
8. ágúst (lau) kl. 21:00 - ÞAU á LEYNI á Akureyri (frítt inn - frjáls framlög)
14. ágúst (fös) kl. 20:30 - ÞAU á ÆGIR 220 (miðasala við hurð)

Flytjendur

  • ÞAU
    ÞAU

    Hljómsveitin Þau er samstarfsverkefni listafólksins og hjónakornanna Rakelar Bjarkar Björnsdóttur og Garðars Borgþórssonar. Tvíeykið hefur þegar gefið út tvær plötur, ,,Þau taka Vestfirði” og ,,Þau taka Norðurland” og haldið fjölda tónleika. Um er að ræða tónlist sem samin er við ljóð skálda annars vegar frá Vestfjörðum og hins vegar frá Norðurlandi.

  • Rakel Björk

    Syngur falleg jólalög