Dýratónar með Sóleyju og ÞYKJÓ | Harpa býður heim

Dýratónar með Sóleyju og ÞYKJÓ | Harpa býður heim

Harpa | Stemma, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

lau. 22.08.2026 13:00

Tónegg, taktbjöllur og sönghveli

Dýratónar er hljóðfæralína sem er innblásin af söng dýranna. Hún á heima í Hljóðhimnum í Hörpu en á tyllidögum fer hún stundum á flakk yfir ganginn og inn í Vísu, sem er herbergi á jarðhæð Hörpu. 

Á Menningarnótt ætla tónlistarkonan sóley og hönnunarteymið ÞYKJÓ að bjóða börnum og fjölskyldum að búa til sínar eigin laglínur og takta úr hljóðum skordýra og söngfugla. Þar verður líka hægt að skyggnast á bak við tjöldin, sjá hvernig græjurnar inn í hljóðfærunum virka og kanna undraverðan hljóðheim dýranna, stórra og smárra.

Flytjendur