Þar sem við mætumst - Íslenski dans­flokk­urinn | Harpa býður heim

Þar sem við mætumst - Íslenski dans­flokk­urinn | Harpa býður heim

Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

lau. 22.08.2026 16:00

Á Menningarnótt gefst gestum Hörpu tækifæri til að kynnast Íslenska dansflokknum í óvæntum og lifandi innskotum víðs vegar um húsið.
Klukkan 16:00 flytja Emilía Benedikta Gísladóttir og Shota Inoue fallegan og náinn dúett í Silfurbergi úr verkinu Þar þar sem við mætumst.
Klukkan 17:30 færist dansinn um húsið. Frá Himnastiganum liggur leiðin niður í Hörpuhorn þar sem dansarar Íslenska dansflokksins fylla rýmið af orku með kraftmiklu broti úr sama verki.
Gestir og gangandi mega búast við því að hreyfingin smiti út frá sér og dragi jafnvel einhverja út á dansgólfið.

Flytjendur