Jazz í Djúpinu // Kjalar Kollmar - Heimsókn til Brasilíu

Jazz í Djúpinu // Kjalar Kollmar - Heimsókn til Brasilíu

Djúpið, Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík Kort

fim. 13.08.2026 20:30

ÍSLENSKA

Undanfarin tvö ár hefur söngvarinn Kjalar Kollmar orðið mikill aðdáandi og áhugamaður brasilískrar tónlistar. Í námi sínu við Jazz Institut Berlin hefur hann fengið að kynnast tónlistarstefnunni vel og ætlar nú að flytja sín uppáhaldslög þaðan. Þar má nefna lagahöfunda og flytjendur eins og Toninho Horta, Antonio Carlos Jobim, Elis Regina og Chico Buarque. Tónsmíðar Kjalars hafa einnig orðið fyrir brasilískum áhrifum og verða einhver af hans eigin lögum einnig á efnisskránni.

Með Kjalari verða fyrsta flokks hljóðfæraleikarar á sviðinu en hljómsveitina skipa:

Alexandra Rós Norðkvist - Slagverk

Andrés Þór Gunnlaugsson - Gítar

Birgir Steinn Theodórsson - Bassi

- -

Tónleikaröðin Jazz í Djúpinu fer fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:30 sumarið 2026. Djúpið er kjallarinn á veitingastaðnum Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). Inngangur í Djúpið er að aftan, til móts við Bæjarins beztu. Inngangurinn í kjallarann opnar kl. 20:00. Miðaverð er 4.000 ISK, miðar eru seldir við innganginn og í forsölu. Tónleikaröðin eru skipulögð af Jazzdeild FÍH og er styrkt af Menningarsjóði FÍH, Tónlistarsjóði og Reykjavíkurborg. Athugið að ekki er hjólastólaaðgengi á staðnum.

Flytjendur