ÞAU á Gísla, Eiríki og Helga
Gísli, Eiríkur, Helgi, Grundargata 1, 620 Dalvík Kort
fim. 06.08.2026 20:30
ÞAU spila í sumar
Á GÍSLA, EIRÍKI OG HELGA Á DALVÍK
🗓 Fimmtudagskvöldið 6. ágúst
🕘 Tónleikar hefjast kl. 20:30
🎟️ Frítt inn - Frjáls framlög
ÞAU eru söng- og leikkonan Rakel Björk og gítar- og trommuleikarinn Gaddi.
Tær rödd Rakelar mætir grófum gítarleik Gadda í frumsamdri tónlist við íslensk ljóð, þar sem áhrif úr rokki, indí, jazzi og poppi fléttast saman. Með looperum og fjölbreyttum effektum á raddir og hljóðfæri skapa ÞAU lifandi og óvæntan hljóðheim á sviði, þar sem aðeins tveir tónlistarmenn fylla rýmið af tónlist.
ÞAU hafa sent frá sér plöturnar ÞAU taka Vestfirði og ÞAU taka Norðurland, sem hafa hlotið góðar viðtökur, og vinna ÞAU nú að þriðju plötunni, ÞAU taka Suðurland.
ÞAU komu nýverið fram á HEIMA í Hafnarfirði og halda nú ferðalaginu áfram um landið!
Flóknasta verkefnið verður líklegast að koma öllu fyrir í bílnum, en við vorum svo lánsöm að fá aðstoð frá snillingunum hjá Blue Car!! Amman og afinn fylgja hljómsveitinni á ferðalaginu og passa Glóeyju litlu á meðan foreldrarnir rokka. Gott plan! Eitt er víst að þetta verður ábyggilega stuð, eins og síðustu fimm sumur! 😋
☀️☀️☀️☀️☀️
ÞAU spila í sumar:
Tónleikadagskrá:
22. apríl (mið) - ÞAU á HEIMA í Hafnarfirði
5. júní (fös) - ÞAU og Valborg Ólafs í Midgard
10. júlí (fös) kl. 21:00 - ÞAU á Frjó Listahátíð - Alþýðuhúsið Siglufirði (miðasala við hurð/hátíðarpassi)
22. júlí (mið) kl 21:15 - ÞAU í Heydal (frítt inn - frjáls framlög)
25. júlí (lau) kl. 20:00 - Bríet Vagna og ÞAU í Kómedíuleikhúsinu í Haukadal (https://www.midix.is/en/briet-vagna-og-thau-i-komediuleikhusinu-25-jul-2026/eid/1126)
26. júlí (sun) kl. 14:00 - 19:45 - ÞAU á Hesteyri (miðasala hefst innan skamms)
28. júlí (þrið) kl. 20:00 - ÞAU í Dalbæ í Unaðsdal - (frítt inn - frjáls framlög)
30. júlí (fim) kl. 21:15 - ÞAU í Síldarverksmiðjunni á Djúpavík - (frítt inn - frjáls framlög)
6. ágúst (fim) kl. 20:30 - ÞAU á Gísli, Eiríkur og Helgi á Dalvík (frítt inn - frjáls framlög)
8. ágúst (lau) kl. 21:00 - ÞAU á LEYNI á Akureyri (frítt inn - frjáls framlög)
14. ágúst (fös) kl. 20:30 - ÞAU á ÆGIR 220 (miðasala við hurð)
☀️☀️☀️☀️☀️
🌻🌻🌻🌻🌻
FOLLOW ÞAU AND LISTEN ON SPOTIFY
https://open.spotify.com/artist/6Ct50lb1SYNbNs1JEPDGcJ...
EPK/Website: https://www.rakelbjork.com/thau-music
Facebook: https://www.facebook.com/thaucompany
Instagram: https://www.instagram.com/thau.company/
🌻🌻🌻🌻🌻
____________________________
Flytjendur
-
ÞAUHljómsveitin Þau er samstarfsverkefni listafólksins og hjónakornanna Rakelar Bjarkar Björnsdóttur og Garðars Borgþórssonar. Tvíeykið hefur þegar gefið út tvær plötur, ,,Þau taka Vestfirði” og ,,Þau taka Norðurland” og haldið fjölda tónleika. Um er að ræða tónlist sem samin er við ljóð skálda annars vegar frá Vestfjörðum og hins vegar frá Norðurlandi.