Verið velkomin á hátíðaropnun Seiglu í Hörpuhorni, þar sem við fögnum upphafi sjötta ársins sem við höldum upp á Seiglu!
Á barnum verður hægt að kaupa sér drykk og njóta góðrar samveru með flytjendum, skipuleggjendum og gestum hátíðarinnar áður en fyrstu tónleikar helgarinnar hefjast.
Komdu og taktu þátt í að setja tóninn fyrir helgi fulla af tónlist, upplifunum og góðum stundum.
Dagskrá hátíðarinnar verður kynnt og nokkrir flytjendur Seiglu stíga á svið og gefa smjörþefinn af því sem koma skal.
Seigla er kammertónlistarhátíð í Hörpu sem býður upp á fjölbreytta viðburði þar sem hið hefðbundna tónleikaform er brotið upp.
Flestir viðburðir Seiglu fram í Norðurljósum og Hörpuhorni í Hörpu. Meðal flytjenda eru kammersveitin Elja, sem kemur fram bæði á laugardags- og sunnudagskvöld með annars vegar tónleika um Julius Eastman og hinsvegar um dægurlagatónlist útsetta úr óvæntum áttum. Þá bjóðum við danska kammerkórinn Det Unge VokalEnsemble velkominn en hann syngur bæði íslenska og danska tónlist, og frumflytur verkið Phaethon eftir Veroniku Voetmann.
Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa, meðal annars opna fjölskyldudagskrá undir heitinu Litla Seigla. Á Litlu Seiglu munum við fara í snú snú með tónlist, leika okkur að opna hljóðverkinu Suð í Hörpuhorni og syngja saman í Norðurljósum í Tónapúsli.
Í ár tekur dagskrá Seiglu mið af þemanu flétta. Við bjóðum flytjendum og áheyrendum að nálgast þemað frá ólíkum sjónarhornum og velta fyrir sér hvernig þræðir tónlistar, texta, rýmis og mannlegra samskipta geta fléttast saman í skemmtilega heild. Fléttan getur birst á margvíslegan hátt. Hún getur til dæmis falist í því hvernig samband mismunandi tónverka í efnisskrá fléttast saman í eitt. Hún getur einnig komið fram í tónlistinni sjálfri, þar sem ólík stef, sögur, minningar eða hugmyndir tvinnast saman og skapa ný tengsl og merkingu. Við hvetjum þátttakendur til að kanna fléttuþemað á sinn eigin hátt, en markmiðið er að skapa rými þar sem ólíkir þræðir geta mæst, fléttast saman og orðið að einhverju nýju.
Flytjendur
-
Seigla
Tónlistarhátíðin Seigla
-
Elja kammersveit
Kammersveit sem kemur fram með kórnum