Nyrst, Angist & Skurðgoð í Tónabíó

Nyrst, Angist & Skurðgoð í Tónabíó

RVK Bruggfélag Tónabíó, Skipholt 33, 105 Reykjavík Kort

lau. 19.09.2026 19:30

Laugardaginn 19. september verður slegið til sannkallaðrar djöflarokksveislu í Tónabíó en þá munu hljómsveitirnar Nyrst, Angist og Skurðgoð stíga á svið.

Nyrst hefur starfað síðan 2016, gefið út tvær breiðskífur og er sú þriðja í burðarliðnum. Sveitin hefur komið fram á öllum helstu þungarokkshátíðum landsins en einnig spilað víða um Evrópu á stórum hátíðum á borð við Inferno, Summer Breeze, Mystic Festival og Soulcrusher. Nýtt efni verður frumflutt á þessum tónleikum.

Angist var stofnuð 2009 og hefur skipað sér stóran sess í íslensku þungarokksenunni. Sveitin hefur verið starfandi með mislöngum hléum en komið nýverið fram á tónleikahátíðum bæði hérlendis og utanlands og þar má nefna helst Sátan, Desertfest, G! Festival og Inferno. Óhætt er að segja að mikil eftirvænting ríkir um hana.

Skurðgoð hefur gefið af sér gott orð undanfarin ár sem upprennandi fulltrúar nýjustu kynslóðar svartmálms á Íslandi. Hljómsveitin gaf út sína fyrstu breiðskífu nýlega við miklum undirtektum.

Flytjendur

  • Nyrst
    Nyrst

    Icelandic Black Metal.

  • Skurðgoð
    Skurðgoð

    Skurðgoð er black metal hljómsveit sem spilar frumsamin lög með áherslu á hraða, ómstríðu, laglínu og frumöskur.

  • Angist
    Angist

    http://angisttheband.bandcamp.com