Setning Hinsegin daga 2026 // Opening of Reykjavík Pride 2026

Setning Hinsegin daga 2026 // Opening of Reykjavík Pride 2026

Iðnó, Vonarstræti 3, 101 Reykjavík Kort

þri. 04.08.2026 12:00

Hinsegin dagar 2026 verða settir þriðjudaginn 4. ágúst kl. 12:00. Þar mörkum við upphaf einnar litríkustu og skemmtilegustu viðburðarviku ársins, sem státar af fjölbreyttri dagskrá um réttindi, menningu og sýnileika hinsegin fólks.

Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar, flytur ávarp og Helga Haraldsdóttir, formaður Hinsegin daga setur hátíðina formlega.

Gestum býðst að taka þátt í föndri og kríta falleg skilaboð á stéttina fyrir framan Pride Centre. Við hvetjum öll til að kíkja í Pride Centre (IÐNÓ) og heimsækja Hinsegin Kaupfélagið á annarri hæð.

Öll eru velkomin!

Viðburðurinn verður haldinn fyrir utan Pride Centre (Iðnó).

Viðburðurinn er aðgengilegur öllum.

Flytjendur