Pláneta býður þér á sporbaug um veröld sína fulla af skynjunarleik!
Búðu þig undir ferðalag fullt af skynjun, áferð, efnivið og ilmandi upplifun. Einstök skemmtun fyrir öll börn, en gagnlegast fyrir börn á aldrinum 0-6 ára. Skynjunarleiksmiðjan mun kynna þig fyrir nýrri skynjunarupplifun á skemmtilegan og gagnvirkan máta.
Pláneta er stofnuð af Joriku og Sigurði sem uppgötvuðu töfra skynjunarleiks fljótlega eftir fæðingu frumburðar þeirra. Þau höfðu svo gaman af og sáu þann ótrúlega ávinning sem skynjunarleikur hafði á þroska dóttur þeirra að þau vildu deila reynslu sinni og upplifunum með öðrum foreldrum á Íslandi. Með leiksmiðjum sínum leitast Jorika og Siggi við að hjálpa öðrum foreldrum að uppgötva jákvæð áhrif skynjunarleiks á þroska barnanna og leyfa sköpunarhæfni þeirra að blómstra.
Öll velkomin og ókeypis aðgangur!
Nánari upplýsingar veitir:
Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur
astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is | 4116230
planeta@planeta.is
Skynjunarleikur með Plánetu!
Borgarbókasafnið Spönginni, Spöngin 41, 112 Reykjavík Kort
þri. 15.09.2026 10:00
Flytjendur
-
Pláneta
Í sólkerfi skynjunarleiks.