Sumarlestrarátak 2026 | Summer reading challenge

Sumarlestrarátak 2026 | Summer reading challenge

Amtsbókasafnið á Akureyri, Brekkugata 17, 600 Akureyri Kort

mið. 12.08.2026 08:15

MEEEIRA FJÖR! 🐐

Gúndi geithafur þarf hjálp!

Garnirnar gaula og nú hefst

🌿 grasleitin mikla 🌿

Gúndi geithafur hvetur öll 6–12 ára börn til að hjálpa honum að finna gras til að bíta. Með vegabréf í hönd safna þau stimplum og happamiðum. Einn heppinn lesandi dregin út í hverjum mánuði og fær verðlaun.

Hvað þarf að gera?

Til að taka þátt þurfa börnin að:

heimsækja almenningsbókasafn

ná þar í vegabréfið

og hefja lestur!

Inni í vegabréfinu er landakort og svaðilförin hefst með Gúnda geithafri efst í vinstra horni.

Markmiðið er að lesa í 15 mínútur á dag og merkja þá við hvert barnið er komið á leið Gúnda í grasleitinni miklu. Við fjórða hvern lestur hafa börnin lesið í klukkustund og lenda á stjörnu. Fyrir hverja stjörnu fá þau stimpil í vegabréfið á næsta bókasafni og jafnframt happamiða til að setja í lukkupott.

Smám saman ná þau að heimsækja alla áhugaverðu staðina sem Gúndi ferðast um og fá stimpil fyrir. Þá geta þau með stolti sagt: „Ég fann grasið í Grænuhlíð!“

Lestrarátakið byrjar 20. maí og líkur 20. ágúst. Komdu til okkar og nældu þér í vegabréf.

Flytjendur